Ég fer í fríið…

Oooooo hvað er nú ljúft að vera í sumarfríi… Sumaráfanginn minn, þessi eini sem ég var í eftir að venjulegum skólatíma lauk í lok apríl, kláraðist 22. júní (gekk bara prýðilega, takk fyrir – ég held meðaleinkuninni :0) ), og síðan þá er ég búin að njóta lífsins í botn (enn meira en venjulega). Márus kláraði svo sinn skóla um viku síðar, og við erum (öll þrjú) búin að vera í fullu starfi við sumarfrís- og túristastörf síðan þá.

Við Márus að túristast í miðbæ Victoria BC

Márus og ég í að leika ferðamenn í miðbæ Victoria, BC

Til dæmis fórum við í minigolf, 20 km hjólatúr eftir Gæsinni, kíktum á Moss Street Market og borðuðum svo nesti og spiluðum Munchkin í Beacon Hill Park meðan við hlustuðum á lúðrasveit eldri borgara spila lúðrasveitamarsa og fleira skemmtilegt, og við Márus fórum að Thetis Lake þar sem ég sólaði mig og hann gerði tilraun til að svamla í vatninu – sem var reyndar ekki orðið alveg nógu hlýtt. Við erum líka búin að horfa á Victoria Day og Gay Pride skrúðgöngur (svona skrúðgöngur með atriðum – svipað og á Gay Pride heima), og tónleika og flugeldasýningu í tilefni af Canada Day. Ég er búin að vera ansi dugleg að taka myndir á símann minn og hlaða upp á facebook, ef einhvern langar að skoða þá smelltu hér (þetta albúm er fullt) og svo hér (ég er enn að bæta í þetta albúm).

4 responses to this post.

  1. Jeii.. flott mynd af ykkur..

    Fariði svo að koma heim! þetta er komið nóg! heheheh :)

    Reply

  2. Posted by Þóra Marteins on 11/07/2011 at 09:39

    knús sæta mín :-*

    Reply

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.