Barnið vex

Í gær voru keyptir tvenn ný skópör á Márus skóböðul, sem reyndar hafði tekist að treina síðasta par í 7 mánuði.  Það er sosum ekki í frásögur færandi nema fyrir það að nýju skórnir eru í stærð 41.   Já fjörtíu og eitt.  Hann notar semsagt sömu stærð og ég.  Í amerískri skóstærð er það númer 8 – sumarskór síðasta árs voru í stærð 5.5.  Finnst ykkur þetta í lagi???

Hann hefur líka stækkað talsvert – á tveimur vikum núna í vor um heilan sentimeter.  Sem betur fer er hann hættur að ganga í síðbuxum í bili, því þær verða ekki síðar mikið lengur ef fram heldur sem horfir.

Þessum vaxtakippi fylgja líka tannbreytingar – barnið sem ekki hafði misst tönn frá því áður en við fluttum hingað út (það eru nærri komin 2 ár síðan!!) er búinn að missa FIMM á innan við mánuði.  Og öllum var bókstaflega ýtt burt af full0rðinstönnum sem liggur á að komast upp – já og svo er ein í viðbót sem tókst ekki að ýta hinni burt heldur kemur bara niður fyrir ofan hana / utan á gómnum (kannski maður ætti að fara að finna sér tannlækni hérna??)

Hér koma svo nokkrar myndir af flotta stráknum okkar sem stækkar allt of hratt…

Sólin sleikt á túninu fyrir framan þinghúsið

Sólin sleikt á túninu fyrir framan þinghúsið

Töffari á ströndinni í Oak Bay

Töffari á ströndinni í Oak Bay

Í fyrsta hjólatúr vorsins.  Hverjum líkist hann???

Í fyrsta hjólatúr vorsins. Hverjum líkist hann???

14 responses to this post.

  1. Posted by Sunna on 13/06/2011 at 16:54

    Ji, hann verður orðinn stærri en frænka sín fyrir haustið… ætli ég verði þá ekki titluð Sunna “litla” frænka.. veit ekki alveg hvað mér finnst um það…

    En mega knús á ykkur

    Reply

  2. Posted by Steini on 14/06/2011 at 02:42

    Flottar myndir af “littla” barninu. Kv. Steini

    Reply

  3. hann er svona ekta bland í poka… :)

    Reply

    • Hihi – mamma er að leita að og ætlar að skanna inn mynd af mér á þessum aldri þar sem ég er víst ægilega lík honum (eða öfugt líklega) :0)

      Reply

  4. Posted by lovisa on 14/06/2011 at 08:58

    Ég man vel þegar ég fór með Helga í skóbúð og hann kom út í skóm 3 númerum stærri en þeir sem hann var í daginn áður! Ég var í sjokki en afgreiðslukonan sagði að þetta væri mjög algengt hjá ungum drengjum! Mann nú ekki alveg eftir þessum mikla tannvexti!
    knús á stóra strákinn!!! Lovisa

    Reply

    • Jiminn – 3 númerum….
      Annars mátaði ég sandalana hans í gær, og horfði svo á hann fara í þá í morgun – og þeir virkuðu minni á honum en mér!!
      Kem knúsinu áleiðis :0)

      Reply

  5. Posted by Ása Dröfn on 14/06/2011 at 11:59

    Mér fannst einmitt einnig nóg um þegar Birgitta var komin í einni og hálfri stærð meira en ég af skóm :) Flottar myndir og hafið það gott úti :) kv.Ása

    Reply

  6. Posted by Heiða on 14/06/2011 at 13:41

    Hann er sko alveg rosalega líkur mömmu sinni á þessari mynd! :)
    Knús til ykkar!

    Reply

  7. Posted by Björg Stefánsdóttir on 15/06/2011 at 04:56

    Þeir eru nú nokkrir fótstórir í fjölskyldunni, flottar myndir af flottum strák. Knús og kossar

    Reply

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.