Ojæja, tíminn frá síðasta bloggi segir víst sitt um það hvað eru búin að vera mikil rólegheit á þessum bæ. Eða þannig. Skólinn tekur alveg sinn toll: employment law, markaðssetning á netinu, markaðsrannsóknir, mannauðsstjórnunarkerfi (ótrúlega leiðinlegur áfangi – átti ekki von á því!!) og verkalýðsmál, alveg indælis önn verð ég að segja. Eftir þessa önn á ég svo bara eftir 7 áfanga og tvo vinnu-kúrsa (svona nema-dæmi) til að klára BBA gráðu í mannauðsstjórnun og leiðtogafærni, sem þýðir að ég stefni að útskrift vorið 2012, og er rosalega fegin að vera farin að sjá fyrir endann á þessu, þótt þetta sé nú gaman
Annars er það helst að frétta að veturinn í Victoriu er búinn að vera margfalt snjóþyngri en sá í fyrra! Þá var rétt einusinni hægt að segja að væri föl á jörðu, og það entist ekki nema uþb. 4 klst. Í vetur hefur hinsvegar þrisvar komið talsverð snjókoma – nóg til að stöðva alla borgina tvisvar! …það eru ca 15cm af snjó sem til þarf, enda enginn á snjódekkjum, hvað þá að fólk kunni að keyra í snjó. Síðasta skvettan kom í síðustu viku, einmitt um það leyti sem venjulega hafa verið svokallaðir blómatalningadagar – þegar íbúar blómaborgarinnar Victoriu telja blómin í garðinum og á trjánum umhverfis sig, og skrá töluna á ákveðna vefsíðu. Borgin sendir svo blómum hlaðna bíla til annarra borga með sínum tölum – svona til að monta sig svolítið… Sjá: http://www.harbourliving.ca/event/victoria-flower-count-2011/2011-03-04/ og http://www.flowercount.com/ En nei, nú voru öll blóm bara svæfð með þykku lagi af snjó. Vonandi tekst þeim nú samt að sperra sig fyrir sumarið – ég á nú ekki von á öðru




Posted by Björg on 15/03/2011 at 06:38
Hæ, bara að kvitta,