11 ára afmæli

 

ESTA-fararheillarfallið reyndist einmitt vera akkúrat það – heimferðin okkar var yndisleg í alla staði, við fengum að hitta næstum alla sem okkur langaði að hitta (þótt auðvitað hefðum við viljað enn meiri tíma með sumum!), borðuðum auðvitað fullt af æðislegum mat, sáum flugelda, og skiptum pökkunum okkar fyrir nýja pakka, skruppum á Hofsós og syntum í nýju lauginni.  Ferðin endaði á afmæli, en Márus varð 11 ára 6. janúar (já 11!!!), og við fengum til okkar (eða reyndar mömmu og pabba – takk enn og aftur elsku m+p!!!) yfir fimmtíu manns í afmælisveislu (fyrst 6 gamlir bekkjarfélagar, sem borðuðu skinkuhorn og tyggjóköku og höfðu svo tískusýningu!!!, og svo vinir og vandamenn) – sem var tilvalið til að kveðja fólkið okkar.

Feðgar á sundi - Drangey í baksýn

Feðgar á sundi - Drangey í baksýn

Ferðin út aftur gekk svo alveg stórvel.  Við flugum til Seattle laugardaginn 8., gistum eina nótt hjá vinum þar (leigðum bíl og GPS tæki – kostaði minna en að taka leigara!), og flugum svo hingað heim morguninn eftir.  Vorum eðlilega þreytt – enda sofum við sjaldnast í flugvélum – og eyddum næstu dögum í að prófa nýja playstation3-ið (sem M fékk í jólagjöf, og var gulrótin fyrir því að fara aftur heim…) og liggja í leti – svona auk þess að mæta í aðeins skólann.

Núna  á laugardaginn fékk svo Márus að halda krakkaafmæli hérna úti, og bauð 13 krökkum í partý í Taekwondo stöð!  Þetta var algjört æði, fyrst hálftíma kynning á íþróttinni (kýla, sparka, hneigja, virðing fyrir sjálfum sér, foreldrum sínum og kennurum, sjálfsvörn ef einhver hrekkjalómurinn reynir að taka þig hálstaki osfrv), og svo leikir – allir í röð, og stökkva yfir púða og sparka í fóðraðan spaða, og “slagur” með mjúkum bareflum – þvílíkt stuð!!!  Þarna voru tveir aðrir sambærilegir hópar á sama tíma, svo þetta var vænn hópur.

 

Márus æfir hástökk

Márus æfir hástökk

Eftir hreyfinguna var svo boðið upp á pizzu, og við mættum með drykki og ísköku, skreytta með körfuboltaþema og nafni + aldri Márusar.  Eftir að Márus hafði opnað pakka (bækur, körfuboltakarfa á hurð, hokkýdót og fleira sniðugt)  fóru svo gestir heim alsælir og sveittir, með gjafakort fyrir fríum mánuði hjá stöðinni og “goodie-bag”, sem við höfðum fyllt m.a. með gerfinefjum, gleraugum og tönnum :0)

Loren, bekkjarsystir og vinkona Márusar

Loren, bekkjarsystir og vinkona Márusar

Fleiri myndir úr afmælinu er að finna hér.

6 responses to this post.

  1. Posted by Þóra Marteins on 19/01/2011 at 12:51

    Kvitt kvitt sæta mín. Dásamlegt að sjá þig um jólin :)

    Reply

  2. Posted by mamma on 19/01/2011 at 18:17

    Takk fyrir flottar myndir !

    Reply

  3. Takk fyrir myndirnar, fínar og segi það sama rosalega gaman að fá ykkur heim um jólin. Alvöru jól. Knus á línuna.

    Reply

  4. Posted by Björg on 28/01/2011 at 05:27

    Þetta hefur verið frábært afmæli, gaman að skoða myndirnar.

    Reply

  5. Posted by Alex Ægisson on 29/01/2011 at 14:46

    Hæ. Takk fyrir síðast.
    Sniðugt að halda uppá afmælið í Taekwondo stöð !
    Bið að heilsa öllum. Sérstaklega Márusi frænda :)

    Kv Alex

    Reply

  6. Posted by Inga Heiða on 20/03/2011 at 05:02

    Tyggjókaka vakti svo sannarlega áhuga minn ;-) p.s. Flott mynd af feðgunum í sundi … greinilega brjálað að gera þennan dag í sundinu hehe. Ég var einu sinni í klukkutíma ein í sundi þarna, bara dásemd!

    Reply

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.