Gunni og Márus eru komnir til Seattle og bíða eftir flugi áfram heim. Fall er fararheill, og litla bátar-babbið fellur sko alveg undir fall :0)
Eftir nærri eitt og hálft ár í útlandinu er ýmislegt sem maður saknar (að auki við fjölskyldu og vini að sjálfsögðu!) og þar á meðal eru ýmsir réttir sem við erum mikið búin að hlakka til að borða heima… Hér er lítill listi yfir það sem okkur langar í! Þið megið giska hver setti hvað á þennan lista ;0)
- Saltað hrossakjöt
- Saltkjöt og baunir
- Siginn fiskur
- SKATA!
- Lambalæri / hryggur
- Kjötsúpa
- Píta frá Pítunni með lambakótilettu
- Ný ýsa soðin, með hamsatólg
- Fiskibollur
- (Saltaðar?) Gellur með brúnni sósu
- Gæs – ávaxtafylling – franskar (eins og á sunnudagsmorgnum á Ölduslóð ;0)
- Grillaðar lambalærissneiðar / kótilettur / lundir
- kótilettur í raspi
- Klausturbleikja
- Malt og appelsín
- Hamborgarhryggur með öllu
Lax og fisk í raspi höfum við haft í matinn reglulega hérna úti og þurfum ekki að fá heima :0)



